Sigurborg SH 12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH 12 landar í dag í Grundarfirði rúmum 72 tonnum, þar af rúmum 20 tonnum af þorski og ýsu og tæpum 12 tonnum af skarkola en minna í öðrum tegundum. Sigurborg var meðal annars á veiðum við Flökin, á Nesdýpi og Herðatré.

Farsæll SH 30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH 30 landar í dag við Grundarfjarðarhöfn tæpum 64 tonnum, þar af um 23 tonnum af ýsu, um 15 tonnum af þorski og um 8 tonnum af skarkola en minna í öðrum tegundum. Farsæll var meðal annars á veiðum á Malarrifi og í Holu.

Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK 2 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með 122 tonna afla en þar af voru rúm 112 tonn af þorski og lítið í öðrum tegundum. Drangey hóf veiðiferðina norðan við Kolbeinsey en eyddi svo mestum tíma á Ostahrygg ásamt því að kasta aðeins á Skagagrunni í lokin.