Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK 2 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með 122 tonna afla en þar af voru rúm 112 tonn af þorski og lítið í öðrum tegundum. Drangey hóf veiðiferðina norðan við Kolbeinsey en eyddi svo mestum tíma á Ostahrygg ásamt því að kasta aðeins á Skagagrunni í lokin.