Málmey SK 1 landar á Sauðárkróki

Málmey SK 1 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með 114 tonn, að mestu þorsk, eða um 97 tonn af honum. Næst mest var af ýsu, um 9 tonn. “Við vorum á veiðum norðan við Kolbeinsey og túrinn byrjaði mjög rólega. En svo hittum við á fisk og fengum einhver 70 tonn af þorski […]