Málmey SK 1 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með 114 tonn, að mestu þorsk, eða um 97 tonn af honum. Næst mest var af ýsu, um 9 tonn.
“Við vorum á veiðum norðan við Kolbeinsey og túrinn byrjaði mjög rólega. En svo hittum við á fisk og fengum einhver 70 tonn af þorski á einum og hálfum sólarhring. Svo kom bræla og þá hvarf þetta, en það slapp ágætlega því við vorum nokkurnveginn komnir með skammtinn þá, svo við héldum á Reykjarfjarðarál í ýsu. Annars var veðrið bara fínt í þessum túr, fyrir utan þessa smá brælu.” Sagði Hermann Einarsson, skipstjóri.