Farsæll SH 30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH 30 kom til löndunar í Grundarfirði í morgun með um 68 tonna blandaðan afla, þar af voru rúm 20 tonn af ýsu, rúm 17 af þorski og tæp 13 af karfa. “Þessi túr gekk bara ljómandi vel og það var þokkalegt veður allan tímann.” Sagði Guðmundur Kristján Snorrason, skipstjóri. “Við byrjuðum við Garðskagann, […]

Sigurborg SH 12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH 12 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í morgun. Í skipinu voru um 62 tonn af blönduðum afla, þar af um 24 tonn af ýsu og um 21 tonn af þorski en minna í öðrum tegundum. Sigurborg var meðal annars á veiðum á Skápnum og á Herðatré. Það verður svo sem seint sagt að […]

Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK 2 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með tæp 147 tonn af fiski, en þar af voru 131 tonn af þorski og mun minna í öllum öðrum tegundum. Drangey var á veiðum fyrir norðan Kolbeinsey, á Litlahrygg og Ostahrygg og að sögn Ágústs Óðins Ómarssonar, skipstjóra, var ágætis þorsk veiði þar og […]