Sigurborg SH 12 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í morgun. Í skipinu voru um 62 tonn af blönduðum afla, þar af um 24 tonn af ýsu og um 21 tonn af þorski en minna í öðrum tegundum.
Sigurborg var meðal annars á veiðum á Skápnum og á Herðatré. Það verður svo sem seint sagt að örnefnin á miðunum séu ekki fjölbreytt, en þema þessarar veiðiferðar hjá Sigurborgu virðist þó hafa verið forstofu-innréttingar.