Sigurborg SH 12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH 12 kom til löndunar í Grundarfirði í morgun með um 56 tonna afla. Mest var af karfa, eða um 17 tonn, svo um 16 tonn af ýsu og um 8 tonn af þorski. Sigurborg var meðal annars á veiðum á Búrbanka og norð-vestan við Sandgerði.

Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK 2 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með um 160 tonna afla, þar af um 119 tonn af þorski og um 27 tonn af ufsa en minna í öðrum tegundum. Drangey var aðallega á veiðum á Ostahrygg en færði kastaði einnig á Tungunni og Grímseyjarsvæði, en endaði túrinn svo á Sléttugrunni.