Drangey SK 2 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með um 160 tonna afla, þar af um 119 tonn af þorski og um 27 tonn af ufsa en minna í öðrum tegundum.
Drangey var aðallega á veiðum á Ostahrygg en færði kastaði einnig á Tungunni og Grímseyjarsvæði, en endaði túrinn svo á Sléttugrunni.