Í gær brá svo við að sérstakur gestakokkur var fenginn til þess að aðstoða matreiðslumeistarann okkar í landi, Jóel Þór Árnason, við að reiða fram veislumat í hádeginu, en sú hefð hefur skapast að á fimmtudögum er örlítið meira lagt í hádegismatinn en aðra daga vikunnar og oftar en ekki eftirréttur í boði líka. Umræddur gestakokkur var enginn annar en framkvæmdastjóri FISK Seafood, Friðbjörn Ásbjörnsson. Saman báru þeir fram nautasteik og bernaise sósu og í eftirrétt var hin margrómaða döðlukaka Friðbjörns.
Þetta gekk vonum framar og var starfsfólk mjög ánægt með veisluna. Einhverjir hafi jafnvel haft orð á því að bernaise sósa Friðbjörns væri sú besta sem þeir hefðu smakkað.
Haft er eftir Jóel að Friðbjörn hafi gengið rösklega til verka og samstarfið hafi gengið mjög vel.
Framkvæmdastjórinn hefur því sýnt að hann ratar ágætlega um í eldhúsinu og er starfsfólk spennt fyrir því að hann taki upp svuntuna aftur.