Á dögunum fengum við tilkynningu um að FISK Seafood hefði hlotið viðurkenninguna Byggðagleraugun fyrir framlag sitt til inngildingar erlendra starfsmanna og fyrir að sýna í verki hvernig atvinnulífið getur verið drifkraftur jákvæðrar samfélagsþróunar á landsbyggðinni.
Verkefnið sem viðurkenningin er veitt fyrir er íslenskunám sem er starfsmönnum að kostnaðarlausu, á vinnutíma. Starfsmannastjóri landvinnslu, Hulda Björg Jónsdóttir, hefur haldið utan um verkefnið. Starfsfólk hefur stundað námið í gegnum Farskólann á Sauðárkróki og í gegnum forritið Bara Tala.
Við hjá FISK Seafood höfum lagt mikinn metnað í það í gegnum tíðina að styðja við starfsfólkið okkar á þann hátt sem við mögulega getum. Við erum mjög stolt af öllu okkar starfsfólki, enda værum við ekkert án þeirra. Erlent starfsfólk landvinnslunnar hefur sýnt mikinn metnað í íslenskunámi sínu og árangurinn leynir sér ekki.
FISK Seafood þakkar kærlega fyrir þessa viðurkenningu, hún er mikils virði, en heiðurinn fær starfsfólkið okkar sem hefur sinnt náminu af elju og við vonum að það hjálpi til við að styrkja stöðu þeirra í samfélaginu.
Á myndinni eru Hulda Jónsdóttir starfsmannastjóri landvinnslu og Friðbjörn Ásbjörnsson framkvæmdastjóri að taka við viðurkenningunni á Hótel Laugarbakka.