Sigurborg SH 12 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn á laugardaginn með 100 tonn af fiski. Uppistaða aflans voru um 53 tonn af steinbít, um 19 tonn af þorski og um 10 tonn af karfa. Sigurborg hélt sig í kringum Bjarg allan þennan túr.