Drangey SK 2 landar í Grundarfirði

Drangey SK 2 landaði 180 tonna afla í Grundarfirði í gær, þar af voru um 86 tonn af þorski, um 50 tonn af steinbít og um 21 tonn af karfa, en minna í öðrum tegundum.

Drangey hélt sig að mestu á Látragrunni þennan túrinn en tók þó einnig höl við Víkurál og Grunnkant.

Davíð Már Sigurðsson, matsveinn, sendi okkur þessa mynd sem fylgir fréttinni, af löndun á Grundarfjarðarhöfn.

UMHVERFIS-
DAGUR