Drangey SK 2 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með tæp 147 tonn af fiski, en þar af voru 131 tonn af þorski og mun minna í öllum öðrum tegundum. Drangey var á veiðum fyrir norðan Kolbeinsey, á Litlahrygg og Ostahrygg og að sögn Ágústs Óðins Ómarssonar, skipstjóra, var ágætis þorsk veiði þar og fínt veður nema um miðja vikuna þegar kom smá bræla úr suð-austri. Þá sagði hann að túrinn hefði verið mjög þægilegur heilt yfir -já nema fyrir matsveininn, Davíð Má Sigurðsson, sem þurfti að vaska upp á gamla mátann þar sem að uppþvottavélin var biluð.
Viðgerð á vélinni stendur nú yfir og bindum við vonir við að hún verði komin í lag fyrir næstu veiðiferð, svo Davíð geti aftur einbeitt sér að matseldinni í stað þess að standa á kafi í uppvaski. Það eru jú takmörk fyrir því hvað hægt er að leggja á matsvein í einum túr.