Farsæll SH 30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH 30 kom til löndunar í Grundarfirði í morgun með um 68 tonna blandaðan afla, þar af voru rúm 20 tonn af ýsu, rúm 17 af þorski og tæp 13 af karfa.

“Þessi túr gekk bara ljómandi vel og það var þokkalegt veður allan tímann.” Sagði Guðmundur Kristján Snorrason, skipstjóri. “Við byrjuðum við Garðskagann, þar var fín veiði í ýsu. Svo stoppuðum við aðeins í Norðurkanti og tókum karfann þar. Síðan héldum við okkur norður af Bjargi og í ágætis blandaðri veiði.”