Arnar HU 1 landar á Sauðárkróki

Arnar HU 1 er á landleið og mun hefja löndun við Sauðárkrókshöfn á morgun. Heildarverðmæti þessarar veiðiferðar eru um 340 milljónir og telur varan um 19.900 kassa.

Heildarmagn afla um borð í Arnari eru 550 tonn, þar af um 192 tonn af gullkarfa, um 160 tonn af ýsu, um 103 tonn af þorski og um 67 tonn af ufsa og eitt hvalhræ. Hvalhræið var að vísu ekki tekið með í verðmætatölum, en það var engu að síður hluti af aflanum í þessum túr. Það kemur fyrir að gömul hvalhræ lendi í trollinu og er það víst langt frá því að vera fagnaðarefni um borð – enda getur fnykurinn verið ansi magnaður.

“Farið var út að kvöldi til 14. ágúst og haldið beint á Vestfjarðamið, en við erum búnir að vera þar allan túrinn, frá Halanum og suður að Nætursölunni.” Sagði Jónas Fanndal Þorvaldsson, bátsmaður. 

Hann sagði bæði veiðar og vinnslu hafa gengið vel, enda væri orðin skemmtileg blanda af ungu fólki um borð. Veður hafi verið með besta móti fyrir utan örfáa daga þar sem var smávegis vinnu-kaldi. Þá nefnir hann að túrinn hafi boðið upp á marga borgarísjaka.

Báðar myndirnar sem fylgja fréttinni eru frá Jónasi F. Þorvaldssyni, eða Jonna Þorvaldar eins og hann er alltaf kallaður.

Borgarísjaki sem varð á vegi Arnars á Vestfjarðamiðum.
Hvalhræið sem um ræðir. Á myndinni má einnig sjá Hilmar Inga Örvar, með hulin öndunarfæri vegna fnyks.