Málmey SK 1 landar á Sauðárkróki

Málmey SK 1 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með um 123 tonna afla, en þar af voru um 113 tonn af þorski, restin var í grálúðu og hlýra. Málmey var á sama stað alla þessa veiðiferð og hélt sig norður af Kolbeinsey í ágætis þorskveiði.
Arnar HU 1 landar á Sauðárkróki

Arnar HU 1 er á landleið og mun hefja löndun við Sauðárkrókshöfn á morgun. Heildarverðmæti þessarar veiðiferðar eru um 340 milljónir og telur varan um 19.900 kassa. Heildarmagn afla um borð í Arnari eru 550 tonn, þar af um 192 tonn af gullkarfa, um 160 tonn af ýsu, um 103 tonn af þorski og um […]