Málmey SK 1 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með um 123 tonna afla, en þar af voru um 113 tonn af þorski, restin var í grálúðu og hlýra. Málmey var á sama stað alla þessa veiðiferð og hélt sig norður af Kolbeinsey í ágætis þorskveiði.