Drangey SK 2 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með tæp 142 tonn af afla, sem var nær eingöngu þorskur, eða um 119 tonn af honum. Næst mest var af ýsu, um 12 tonn.
Drangey hóf túrinn á Digranesflaki og endaði túrinn á Glettinganesflaki.