Sigurborg SH 12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH 12 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í morgun. Í skipinu voru um 73 tonn af blönduðum afla, þar af um 23 tonn af ýsu og um 18 tonn af þorski en minna í öðrum tegundum. Sigurborg SH 12 var á veiðum á mörgum stöðum, meðal annars Flákakanti, Herðatré, Nesdýpi og Skápnum.

Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK 2 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með tæp 142 tonn af afla, sem var nær eingöngu þorskur, eða um 119 tonn af honum. Næst mest var af ýsu, um 12 tonn. Drangey hóf túrinn á Digranesflaki og endaði túrinn á Glettinganesflaki.