Sigurborg SH 12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH 12 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í morgun. Í skipinu voru um 73 tonn af blönduðum afla, þar af um 23 tonn af ýsu og um 18 tonn af þorski en minna í öðrum tegundum.

Sigurborg SH 12 var á veiðum á mörgum stöðum, meðal annars Flákakanti, Herðatré, Nesdýpi og Skápnum.