Hólmfríður tekur niður svuntuna

 Í Fréttir, Landvinnsla

Hólmfríður Runólfsdóttir hefur ákveðið að taka niður svuntuna eftir farsæl 50 ár við fiskvinnslustörf.  Hún hóf störf hjá Skildi á Sauðárkróki árið 1975, en frá og með 1993 hefur hún starfað fyrir FISK Seafood.  Í tilefni að þessum tímamótum var boðið upp á köku og kaffi í matsal landvinnslunnar á Sauðárkróki þar sem henni var færður þakklætisvottur fyrir sitt framlag fyrir fyrirtækið.  Viljum við koma á framfæri þökkum frá stjórn og samstarfsfólki FISK fyrir farsæl og góð störf og við óskum henni velfarnaðar í þeim verkefnum sem hún tekur sér fyrir hendur.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter