“Mér hefur alltaf liðið vel hér”

Ólöf Ásta Jónsdóttir lætur af störfum hjá FISK Seafood í dag. Óla, eins og hún er alltaf kölluð, hóf fyrst störf fjá FISK árið 1993.
Hún byrjaði í vinnslunni en hefur starfað sem umsjónarmaður mötuneytis síðan árið 2013 og það er óhætt að segja að hún hafi á vissan hátt haldið starfsemi FISK Seafood uppi í gegnum árin því eins og allir vita gerir maður ekkert svangur.

Óla segir margs að minnast  úr starfinu en aðallega standi upp úr hversu vel henni hafi alltaf liðið hjá fyrirtækinu og vill hún koma á framfæri þakklæti fyrir samstarfið.

Óla byrjaði ung að vinna og hefur alla tíð verið mikill dugnaðarforkur og iðin við vinnu, til dæmis við fiskvinnslu bæði á Hofsósi, í Reykjavík hjá Ísbirninum og svo hjá FISK. Einnig starfaði hún í bakaríinu á Sauðárkróki og á heimavist Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.

Í tilefni síðasta starfsdags Ólafar var boðið upp á tertur í mötuneytinu í dag þar sem starfsfólk gerði sér glaðan dag með Ólöfu og framkvæmdastjóri FISK Seafood, Friðbjörn Ásbjörnsson, sagði nokkur orð. Það má með sanni segja að við munum sakna þess að koma í mat til Ólu, en um leið óskum við henni alls hins besta í framtíðinni.

Fyrir hönd samstarfsfélaga,

Hulda Björg Jónsdóttir