Sigurborg SH 12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH 12 landaði í Grundarfirði í gærkvöldi með 100 tonna afla, það var ágætis blanda eða um 33 tonn af ýsu, um 30 tonn af karfa og um 20 tonn af þorski. Sigurborg var meðal annars á veiðu við Flökin og Jökultungu.

Fréttaritari hafði samband við Ómar Þorleifsson, skipstjóra og hafði orð á því að það hefði verið hörku veiði á Siguborginni undanfarið. Það stóð ekki á svörum hjá Ómari sem sagði að þetta væri alltaf svona á þessu skipi.

“Það er reyndar búið að vera smá bilerí á skipinu, en eftir að við fórum af stað hefur gengið mjög vel hjá okkur. Við höfum verið í blönduðum afla og að reyna að taka svolítinn karfa með. Veðrið er búið að vera mjög fínt og það er kominn vorhugur í menn. “