Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK 2 landaði á Sauðárkróki í morgun með 116 tonna afla, þar af um 70 tonn af þorski, um 18 tonn af ufsa og um 16 tonn af ýsu en minna í öðrum tegundum. Drangey hóf veiðar á Halasvæðinu þar sem var, að sögn Ágústs Óðins Ómarssonar, skipstjóra, góð þorskveiði en lítið af aukaafla. […]