Arnar HU1 landaði á Sauðárkróki

Frystitogarinn Arnar HU1 landaði á Sauðárkróki laugardaginn 19 nóvember s.l. Aflinn um borð samsvarar um 529 tonnum úr sjó, uppistaða aflans var um 227 tonn af ýsu, 124 tonn af ufsa og 92 tonn af þorski. Aflaverðmæti er um 250 milljónir.
Drangey SK2 landaði á Sauðárkróki

Drangey SK2 landaði á Sauðárkróki mánudaginn 21 nóvember s.l. Heildarmagn afla um borð var 156 tonn, uppistaða aflans var þorskur. Drangey var m.a. á veiðum á kantinum vestan við Halann og Þverálshorni.
Málmey SK1 landar í dag.

Málmey SK1 landar á Sauðárkróki í dag. Heildarmagn afla um borð er 145 tonn, uppistaða aflans er þorskur, ýsa og ufsi. Málmey var m.a. á veiðum á Þverálhorni.
Málmey SK1 landar í heimahöfn í dag.

Málmey SK1 landar á Sauðárkróki í dag. Heildarmagn afla um borð er 118 tonn, uppistaða aflans er þorskur og ýsa. Málmey var m.a. á veiðum á Digranesflaki og Glettinganesflaki.
Uppistaða aflans er ýsa og þorskur

Farsæll SH30 landar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð er 65 tonn, uppistaða aflans er ýsa og þorskur. Farsæll var m.a. á veiðum á Nesdýpi og á Búrbanka.
Málmey SK1 kom inn til löndunar.

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki til löndunar. Heildarmagn afla um borð var 109 tonn, uppistaða aflans var þorskur. Málmey var aðallega á veiðum á Digranesflaki.
Drangey SK2 og Sigurborg SH12 landa í dag.

Drangey SK2 landar á Sauðárkróki í dag, heildarafli er 131 tonn, uppistaða aflans er þorskur. Drangey var m.a. á veiðum á Glettinganesflaki. Sigurborg SH12 landar í Grundarfirði í dag, heildarafli er 58 tonn, uppistaða aflans er ýsa, þorskur og skarkoli. Sigurborgin var m.a. á veiðum á Flökunum.
Málmey SK1 landar í heimahöfn í dag.

Málmey SK1 landar í heimahöfn í dag. Það hefur fiskast vel að undanförnu og það sama má segja um þennan túr en heildaraflinn er 134 tonn, uppistaða aflans er þorskur. Það var komið víða við í þessari veiðiferð m.a. á Litlagrunni og Glettinganesflaki í blíðu veðri segir Þórarinn Hlöðversson skipstjóri.
Farsæll landaði í Grundarfirði

Farsæll SH30 landaði í Grundarfirði í gær. Heildarmagn afla um borð 55 tonn, uppistaða aflans var ýsa og þorskur. Farsæll var m.a. á veiðum á Búrbanka og Nesdýpi.
Drangey SK2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK-2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Aflinn var blandaður, um 169 tonn þar af um 123 tonn af þorski og 33 tonn af ýsu. Drangey var meðal annars á veiðum á Glettinganesflaki og Digranesflaki.