Drangey SK2 landaði í Neskaupsstað

 Í Drangey SK 2, Fréttir

Drangey SK 2 kom til Norðfjarðar í gær til löndunar með 76 tonn, af því voru um 71 tonn af þorski. Minna í öðrum tegundum. Drangey var meðal annars á veiðum við Rifsbanka og á Brettingsstöðum. Góð veiði var á Brettingsstöðum og framan af var veðrið fínt en þegar líða tók á túrinn kom bræla.

Drangey hélt aftur til veiða að löndun lokinni.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter