Drangey SK2 landar á Sauðárkróki.

 Í Drangey SK 2, Fréttir

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki til millilöndunar með 89 tonn, af því voru um 62 tonn af þorski, 11 tonn af ufsa, 8 tonn af ýsu og 2 tonn af karfa. Minna í öðrum tegundum. Drangey var meðal annars á veiðum við Þverálshorn og Strandagrunn. Áætlað er að Drangey haldi aftur til veiða að löndun lokinni.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter