Málmey SK1 landar á Sauðárkróki.

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki með 148 tonn, af því voru um 112 tonn af þorski, 21 tonn af ýsu, 5 tonn af ufsa og 2 tonn af karfa. Minna í öðrum tegundum. Málmey var á veiðum við Þverálshorn.

Áætlað er að Málmey haldi aftur til veiða að löndun lokinni.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter