„Það var mokveiði á öllum stöðum“

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki.  Heildarmagn afla um borð var um 166 tonn.
Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra

„Við vorum fjóra sólarhringa á veiðum, byrjuðum í Þverál, færðum okkur svo yfir í Nesdýpi og enduðum veiðiferðina í Reykjafjarðarál.  Það var mokveiði á öllum stöðum, uppistaða aflans var þorskur.  Veðrið var heilt yfir mjög gott“ segir Þórarinn.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter