Drangey SK2 landaði á Sauðárkróki

Drangey SK2 landaði í gær úr fyrstu veiðiferðinni eftir sumarstopp. Heildarafli var 71 tonn, uppistaða aflans var þorskur. Drangey var á veiðum við Straumnesbanka

Arnar HU1 heim úr Barentshafi

Frystitogarinn Arnar HU1 kom til hafnar á Sauðárkróki eftir veiðiferð í Barentshaf. Aflinn um borð samsvarar um 945 tonnum upp úr sjó, þar af um 823 tonnum af þorski. Aflaverðmæti er um 315 milljónir. Heimasíðan hafði samband við Guðjón Guðjónsson skipstjóra og spurði hann um túrinn. „Haldið var til veiða 8. júní og höfum við […]

Málmey SK1 landar á Sauðárkróki

Málmey SK1 landar á Sauðárkróki í dag afla úr síðustu veiðiferð fyrir sumarstopp. Heildarafli 178 tonn mest ýsa og þorskur sem fengust á Barðagrunni og Halanum.

Drangey SK2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK2 landar á Sauðárkróki í dag rúmlega 200 tonnum. Meirihluti aflans er ýsa eða 80 tonn og 65 tonn af þorski. Aflinn fékkst á Deildagrunni og Halanum.  Drangey SK2 stoppar nú í höfn fram yfir sumarfrí.

Sigurborg SH12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH12 landar í dag í Grundarfirði síðustu löndun fyrir sumarstopp. Heildar aflamagn er 60 tonn sem skiptist í ýsu, þorsk, karfa og ufsa  

Málmey SK1 landar á Sauðárkróki

Málmey SK1 landaði í morgun tæpum 160 tonnum á Sauðárkróki.  Skipting aflans var þannig að 49 tonn voru bæði af þorski og ufsa, 37 tonn ýsa og  10 tonn karfi, aflinn fékkst á Nesdýpishrygg og Halanum

Drangey SK2 landar á Sauðárkróki

  Drangey SK2 landaði í morgun á Sauðárkróki. Heildarafli var 164 tonn þar af þorskur 71 tonn og ýsa 58 tonn. Veiðisvæðin voru Nesdýpi, Halinn og Reykjafjarðaráll

Sigurborg SH12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH12 kom í höfn  í gær sunnudag í Grundarfirði. Heildarafli var 74 tonn  mest ýsa og þorskur. Veiðisvæðið var ma. Grunnhali og við Nes

Farsæll SH30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði í gær sunnudag. Heildarmagn afla um borð var  164 tonn þar af þorskur 71 tonn og ýsa 58 tonn. Aflinn fékkst aðallega á Nesdýpi og Halanum