“Veiðarnar gengu glimrandi vel”

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki til millilöndunar.  Heildarmagn afla um borð var um 121 tonn.  Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra. „Við vorum á veiðum í rúmlega tvo sólarhringa, byrjuðum á Straumnesbanka og færðum okkur svo yfir á Kantinn vestan við Halann.  Veiðarnar gengu glimrandi vel, uppistaða aflans var þorskur og ýsu, […]

“Túrinn gekk vel”

Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði.  Heildarmagn afla um borð var um 63 tonn, uppistaða aflans var skarkoli, ufsi og þorskur.  Heimasíðan hafði samband við Stefán Viðar stýrimann. „Túrinn gekk vel, við vorum á fjórða sólarhring á veiðum á Vestfjarðarmiðum, bæði á Grunnslóðinni og einnig út í Kanti, veiðarnar gengu þokkalega.  Megnið af túrnum […]

“Týpískt íslenskt sumarveður”

Sigurborg SH12 landaði í Grundarfirði.  Heildarmagn afla um borð var um 80 tonn, uppistaða aflans var ufsi og þorskur.  Heimasíðan hafði samband við Guðbjörn stýrimann. „Veiðiferðin tók rúmlega fjóra sólarhringa en við vorum á veiðum í rúma þrjá, í Breiðafirði, Nesdýpi og á Halanum.  Það gekk sæmilega að veiða ufsa en þorskurinn var að þvælast […]

“Mokveiði á Halanum”

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki.  Heildarmagn afla um borð var um 214 tonn, uppistaða aflans var þorskur.  Heimasíðan sló á þráðinn til Ágústs Ómarssonar skipstjóra. „Fiskeríið var gott á Kantinum vestan við Halann og við enduðum tæplega fimm sólarhringa veiðiferð í mokveiði á Halanum.  Það var mikið líf í sjónum, æti, hvalur og […]