Sigurborg SH12 með fullfermi.

Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði í gær með fullfermi. Heildarmagn afla um borð var um 82 tonn, uppistaða aflans var að mestu skarkoli, þorskur, ýsa og steinbítur en smávegis var af karfa. Sigurborg var meðal annas á veiðum við Garðskaga og Norðvestur af Bjargi.

“Mjög góð veiði var á Kantinum”

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 141 tonn. Rætt var stuttlega við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra „Við vorum á veiðum í rétt rúma 3 sólarhringa, það var góð veiði á Halanum en við urðum frá að hverfa vegna veðurs þá héldum við í Kolluál þar var veiðin dræm, veiðiferðin […]

Farsæll SH30 landaði í Grundarfirði.

Farsæll SH30 landaði í Grundarfirði laugardaginn 22 febrúar s.l. Heildarmagn afla um borð var um 57 tonn, uppistaða aflans var að mestu þorskur, skarkoli og ýsa en smávegis var af karfa. Farsæll var á veiðum Norðvestur af Garðskaga.

“Aflinn er mjög blandaður en mest er af gullkarfa”

Frystitogarinn Arnar HU1 landaði í Reykjavík í gær. Aflinn í Arnari samsvarar til 527 tonnum af fiski upp úr sjó og verðmæti hans er 168 milljónir. Heimasíðan ræddi við Guðmund Henrý skipstjóra „Við erum að millilanda í Reykjavík eftir 19 daga veiðiferð. Fyrrihluta veiðiferðarinnar vorum við á Vestfjarðarmiðum en forðuðum okkur undan veðri og höfðum […]

“Það er óhætt að segja að þetta hafi verið brælutúr”

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 138 tonn. Rætt var stuttlega við Ágúst Ómarsson skipstjóra „við vorum við veiðar á norðaustur miðum, mest á Rifsbanka. Veiðiferðin varaði í rúma viku en töluverðar frátafir voru vegna veðurs. Það var kropp þegar gaf, af ágætis fiski. Það er óhætt að […]

Farsæll SH30 landar í Grundarfirði.

Farsæll SH30 landar í Grundarfirði, heildarmagn afla um borð er um 61 tonn. Uppistaða aflans er þorskur, skarkoli, ýsa og smávegis af karfa. Aflinn í Farsæl veiddist meðal annars við Flökin og Suðvestur af Bjargi.

“Við vorum á veiðum í um það bil tvo sólarhringa”

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki með 91 tonn. Rætt var stuttlega við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra „Við vorum á veiðum í um það bil tvo sólarhringa, byrjuðum á Rifsbanka í rólegri veiði, færðum okkur síðan yfir á Sléttugrunn þar var góð veiði. Uppistaða aflans er þorskur, smávegis af ýsu og karfa. Það er búið […]

Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði.

Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 69 tonn. Uppistaða aflans er þorskur, skarkoli, steinbítur og smávegis af ýsu og karfa. Sigurborg var meðal annars á veiðum við Flökin.

Matthías og Tryggvi leggja stígvélin á hilluna.

Þeir Matthías Angantýsson og Tryggvi Berg Jónsson hafa ákveðið að „leggja stígvélin á hilluna“ eftir áratuga starf fyrir félagið. Af því tilefni var boðið upp á köku og kaffi í matsal landvinnslunnar á Sauðárkróki þar sem þeir var færður þakklætisvottur fyrir vel unnin störf. Viljum við koma á framfæri þökkum frá stjórn og starfsfólki FISK […]

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki.

Málmey

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 122 tonn, af því voru um 101 tonn af þorski, 6 tonn af karfa og 3 tonn af ufsa. Minna í öðrum tegundum. Málmey var meðal annars á veiðum við Sléttugrunn og Brettingsstaði. Áætlað er að Málmey haldi aftur til veiða að […]