„Fínasta veður allan túrinn“

Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 70 tonn og uppistaða hans meðal annars þorskur, ýsa og karfi. Heimasíðan hafði samband við Jóhann Garðarsson stýrimann. „Við vorum fjóra daga á veiðum. Byrjuðum túrinn á Grunnslóðinni og var ágætis kropp þar af blönduðum afla og enduðum svo túrinn út á […]
Sigurborg SH12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 65 tonn, uppistaða aflans var þorskur og ýsa. Sigurborg var meðal annars á veiðum í Nesdýpi.
Farsæll SH30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði fyrir helgi. Heildarmagn afla um borð var um 65 tonn, uppistaða aflans var þorskur, ýsa og karfi. Farsæll var meðal annars á veiðum í Nesdýpi.
Sigurborg SH12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 60 tonn, uppistaða aflans var þorskur, ýsa og karfi. Sigurborg var meðal annars á veiðum við Látragrunn og Herðatré.
Ný framleiðslulína frá Marel

Nú er að ljúka uppsetningu á nýrri framleiðslulínu í landvinnslu FISK á Sauðárkróki. Á heimasíðu Marel er ágætis umfjöllun um línuna og viðtal við Ásmund Baldvinsson yfirmann landvinnslu https://marel.com/is/frettir/fisk-seafood-fjarfestir-i-nyrri-framleidslulinu-fra-marel/
Nú segi ég ,, takk fyrir mig“

30 júní sl. kom Halldór Hjálmarsson úr sinni síðustu veiðiferð með Málmey SK1 og af því tilefni afhenti Gylfi Guðjónsson útgerðarstjóri honum blóm og gjafakort frá FISK og samstarfsfólki, með kæru þakklæti fyrir samstarfið og vinnu í þágu fyrirtækisins í áratugi. Dóri hóf störf hjá FISK 1987 og hefur því verið hjá fyrirtækinu í 33 […]
Arnar HU1 heim úr Barentshafi

Frystitogarinn Arnar HU1 kom til hafnar á Sauðárkróki 20. júlí eftir veiðiferð í Barentshaf. Heildarmagn afla um borð var um 1.250 tonn upp úr sjó, þar af 1.140 tonn af þorski. Aflaverðmæti er ca. 450 milljónir. Guðmundur Henry skipstjóri segir að veiðar hafi gengið vel í góðu veðri. Alls voru 5 íslensk skip að veiðum […]
Baldvin Hjaltason hefur lagt stígvélin á hilluna.

Baldvin Hjaltason starfsmaður landvinnslu FISK Seafood hefur lagt stígvélin á hilluna. Baldvin hefur starfað hjá landvinnslunni á Sauðárkróki frá árinu 2007 og þar á undan vann hann við almenna fiskvinnslu hjá Skagstrendingi á Skagaströnd þar sem hann er búsettur. Baldvin man tímana tvenna við verkamannastörf og hefur í gegnum tíðina unnið margs konar störf, hans […]
“Mjög góð veiði var í þorski”

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 166 tonn, uppistaða aflans er þorskur. Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra. „Veiðiferðin að þessu sinni voru fjórir sólarhringar, við byrjuðum í Reykjafjarðarál, færðum okkur síðan á Halann og enduðum veiðiferðina í Nesdýpi. Mjög góð veiði var í þorski en róleg […]
Drangey SK2 landar á Sauðárkróki.

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 187 tonn, uppistaða aflans var þorskur. Drangey var meðal annars á veiðum í Strandagrunni og Reykjafjarðaál.