“Það var fín veiði”

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki með 111 tonn, uppistaða aflans er þorskur.  Drangey var að veiðum í rúma tvo sólarhringa á kantinum vestur af hala.  Það var fín veiði og veðrið var gott.

“Það var ágætis veiði í ufsa og þorski”

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki.  Heildarmagn afla um borð var um 209 tonn.  Þetta var viku veiðiferð, en fimm sólarhringar á veiðum meðal annars í Kögugrunni og Flugbrautinni.  Það var ágætis veiði í ufsa og þorski og blíðu veður var í túrnum.

Farsæll SH30 er á leið í land.

Farsæll SH30 er á leið í land í Grundarfirði.  Heildarmagn afla um borð er um 74 tonn, uppistaða aflans er að mestu ufsi, þorskur og skarkoli.  Veiðiferðin tók fimm daga höfn í höfn, en Farsæll var fjóra daga á veiðum í Nesdýpi og út í Kant.  Veiðarnar gengu þokkalega, og veðrið var ágætt.     […]

“Veiðarnar gengu vel”

Sigurborg SH12 landar í Grundarfirði.  Veiðiferðin tók sex sólarhringa höfn í höfn, en þeir voru á veiðum í fjóra sólarhringa og aflinn um 80 tonn.  Veiðiferðin byrjaði við Flökin í Breiðafirði og var ágætis kropp í þorsk, ýsu og skarkola.  Því næst var haldið suður á Reykjaneshrygg og túrinn kláraður í karfa, veiðarnar gengu heilt […]

“Menn eru hoppandi kátir með fiskeríið”

Drangey SK2 landar í Grundarfirði.  Heildarmagn afla um borð er um 154 tonn, uppistaða aflans er að mestu þorskur.  Rætt var við Andra Má Welding stýrimann „Við vorum þrjá sólarhringa á veiðum í þessari veiðiferð, en fyrir helgina millillönduðum við rúmum 100 tonnum eftir tvo sólarhringa á veiðum.  Við vorum á veiðum á Flugbrautinni og […]

Farsæll landar í Grundarfirði

Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði.  Heildarmagn afla um borð var um 71 tonn, uppistaða aflans var ufsi og skarkoli en smávegis var af þorski, ýsu og karfa.  Farsæll var meðal annars á veiðum í Nesdýpi.

“Það var góð veiði allan tímann”

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki.  Heildarmagn afla um borð er um 197 tonn. Heimasíðan hafði samband við Hermann Einarsson skipstjóra „Við vorum fjóra sólarhringa á veiðum.  Veiðiferðin byrjaði djúpt suðvestur af Reykjanesi, fórum svo á Eldeyjarbanka og Flugbrautina, og enduðum á Vestfjarðarmiðum.  Það var góð veiði allan tímann, og veðrið var gott fyrir […]

“Veðrið var með besta móti”

Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði. Rætt var við Guðbjörn stýrimann“ Veiðiferðin var tæpa sex sólarhringa höfn í höfn. Við vorum hins vegar á veiðum í tæpa fjóra sólarhringa.  Það var farið um nokkur veiðisvæði í þessari veiðiferð, byrjað við Snæfellsnesið og tekin 2 stutt höl og svo var haldið suður við Garðskaga, á […]

“Við hittum á mikið af þorski”

Drangey SK2 kom til hafnar í Grundarfirði.  Heildarmagn afla um borð var um 116 tonn, uppistaða aflans var þorskur.  Rætt var við Ágúst Ómarsson skipstjóra „Við vorum tæpa tvo sólarhringa á veiðum á Flugbrautinni sem er veiðislóð fyrir utan Snæfellsnes.  Við hittum á mikið af þorski sem er á útleið þarna.  Bongó blíða allan túrinn, […]

“Veiðin hefur verið mjög góð”

Drangey SK2 landar í Grundarfirði eftir þrjá sólarhringa á veiðum.  Heildarmagn afla um borð var um 178 tonn, uppistaða aflans er þorskur.  Ágúst Ómarsson skipstjóri segir veiðina hafa verið mjög góða og það hafi verið renniblíða.  Við vorum á veiðum á Flugbrautinni og Eldeyjarbanka.