Sigurborg SH 12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH 12 landaði 102 tonnum við Grundarfjarðarhöfn í gær, aflinn var að mestu karfi eða 77,5 tonn. Svo voru tæp 10 tonn af þorski en minna í öðrum tegundum. Sigurborg var á veiðum á Wilson og Jökultungu.
Farsæll SH 30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH 30 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í morgun með um 72 tonn, mest af karfa eða um 58 tonn af honum og næsta tegund á eftir var þorskur, tæp 7 tonn. Karfaveiðin hefur verið farsæl hjá Farsæl og tók þessi túr ekki nema rúman sólarhring, líkt og síðasti túr. Farsæll hélt sig á […]
Drangey fer með bryggjuna í Drangey

Sérstök sjón blasti við á Sauðárkrókshöfn í dag þegar togarinn Drangey SK 2 togaði einkennilegan pramma upp í rennuna, sem venjulega geymir troll. En þessi prammi er flotbryggja sem á að koma fyrir í Drangey (eyjunni) fyrir sumarið, eins og önnur ár. Á myndinni má sjá Viggó Jónsson, frá Drangeyjarferðum, fylgjast með þegar bryggjan er […]
Málmey SK 1 landar á Sauðárkróki

Málmey SK 1 er á landleið með 167 tonna afla og er væntanleg að Sauðárkrókshöfn í dag og löndun fer fram á morgun. Aflinn samanstendur af um það bil 60 tonnum af þorski, 39 tonnum af karfa, 37 tonnum af ufsa og 18 tonnum af ýsu. Málmey var meðal annars á veiðum á Nesdýpishrygg og […]
Umhverfisdagur 2026

Umhverfisdagurinn var haldinn þann 9. maí og tókst með ágætum. Þátttakendur voru 972 og tíndu samtals 18,48 tonn af rusli. Í staðinn styrkir FISK Seafood 16 íþróttafélög um samtals 11.664.000 kr! Þakka ykkur kærlega fyrir þátttökuna, þetta væri ekki hægt án ykkar! Davíð Már Sigurðsson var á myndavélinni þennan daginn og setti saman þetta skemmtilega […]
Farsæll SH 30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH 30 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í gær og hóst löndun úr skipinu í morgun. Farsæll var með 82 tonna afla, nær eingöngu karfa, eða um 77 tonn. Farsæll var rétt rúman sólarhring á veiðum og hélt sig allan tíman á veiðisvæði sem kallast Wilson. “Þetta gekk bara ljómandi vel, við vorum eldsnöggir […]
Sigurborg SH 12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH 12 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í gær með 107 tonn af blönduðum afla, um 34 tonn af karfa, um 32 tonn af ýsu og um 25 tonn af þorski. Sigurborg eyddi mestum hluta túrsins norð-vestur af Sandgerði en endaði svo veiðina á Jökultungu.
Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK 2 kom til hafnar á Sauðárkróki í gær og löndun fer fram í dag. Drangey var með 163 tonn af afla sem var að mestu leyti þorskur, eða um 112 tonn. Drangey var á veiðum á Halanum og Látragrunni. “Við hófum veiðar á halanum í leit að þorski og ufsa en veiðarnar fóru […]
Farsæll SH 30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH 30 er á landleið og mun landa við Grundarfjarðarhöfn í dag um 84 tonnum, aflinn er að meirihluta karfi, eða um 65 tonn. Farsæll var á veiðum á Nætursölunni, en það er veiðisvæði sem er aðeins opið á nóttunni eða frá kl. 20:00 til 08:00 og líklega er nafnið dregið af þeim reglum. […]
Málmey SK 1 landar á Sauðárkróki

Málmey SK 1 er á heimstíminu og landar í fyrramálið við Sauðárkrókshöfn. Í skipinu eru um 104 tonn af fiski, þar af um 74 tonn af þorski og um 19 tonn af ýsu en minna í öðrum tegundum. Málmey hóf þessa veiðiferð á Hvalbaksgrunni og á Hvalbakshalla fyrir suð-austan land, þeir tóku síðan nokkur höl […]